ᐅ Allur höfundaréttur að ljósmyndum er í eigu Sverrir Páll - ljósmyndun

ᐅ Um höfundarrétt ljósmyndara gilda höfundarréttarlög nr. 73/1972.

ᐅ Afhending ljósmynda til viðskiptavinar felur, lögum samkvæmt, ekki í sér framsal á höfundarrétti né veitir hún heimild til breytinga á ljósmyndum.

ᐅ Óheimilt er að  skera/croppa og breyta myndum, þ.m.t. litum og áferð (t.d. fyrir instagram). Allar breytingar eru gerðar af Sverrir Páll - ljósmyndun

ᐅ Óheimilt er að fjarlægja merki/logo af ljósmyndunum sem afhentar eru.

ᐅ Myndirnar eru til einkanota og ekki leyfilegt að nota þær í auglýsingaskyni eða annarrar birtingar nema samið sé sérstaklega um slíkt.

ᐅ Prentun stærri en 13x18cm (stækkanir, framkallanir, strigar og þess háttar) skal fara í gegnum Sverrir Páll - ljósmyndun. Þetta á líka við um ljósmyndabækur.

ᐅ Sverrir Páll - ljósmyndun áskilur sér rétt til að birta myndir, eina eða fleiri, á samfélags-miðlum og á vefsíðu sinni nema um annað sé samið sérstaklega.

ᐅ Viðskiptavinur fær undir engum kringumstæðum afhentar allar þær ljósmyndir sem Sverrir Páll - ljósmyndun tekur í viðkomandi myndatöku.

ᐅ Sverrir Páll - ljósmyndun varðveitir unnar myndir í 6 mánuði til öryggis fyrir viðskiptavin.  Eftir það er varðveisla ljósmynda alfarið á ábyrgð viðskiptavinar. Mælt er með að geyma myndir bæði í skýjageymslu og á hörðum diski eða minniskubbi.

ᐅ Myndirnar eru afhentar rafrænt með niðurhalshlekk og er hlekkurinn virkur í eina viku frá afhendingu.

ᐅ Greiðsla fyrir myndatökuna er skv. verðskrá sem má sjá á heimasíðu og skal greiðsla fara fram strax að myndatöku lokinni.  Ljósmyndir úr myndatöku verða ekki afhentar nema full greiðsla hafi borist. Afhending á myndum er 1-6 vikum eftir að greiðsla fyrir myndatöku hefur borist, en það fer eftir umfangi og tegund verkefnis.

ᐅ Brot á höfundarrétti og skilmálum þessum varða við höfundarréttarlög og áskilur Sverrir Páll - ljósmyndun sér allan rétt vegna slíkra brota.
Back to Top